Thursday, February 19, 2009

FERÐAGETRAUN. Takið fram boxhanskana og vinnið ferð í verðlaun



Hér kemur ferðagetraun ársins 2009. Verðlaun fyrir rétt svör er ferð fyrir einn að vali stjórnar VIMA

1. Tvær drottningar voru miklar valdakonur í Jemen fyrir nokkur hundruð árum. Önnur var Bilquis, drottningin af Saba. Hvað hét hin og hvar var aðsetur hennar?

2. Hversu langur og breiður er dalurinn Wadi Hawdramaut í Jemen?

3. Hvaða dag árið 1969 varð Moammar Gaddafi leiðtogi í Líbíu?

4. Hvað heitir forseti Líbanons sem tók við eftir langa stjórnarkreppu fyrir nokkrum mánuðum? Er hann kristinn, sjia eða sunni?

5. Hvaða land heitir Misr á arabísku?

6. Teljið upp forseta Írans frá valdatöku Khomeinis 1979?

7. Hvaða borgir í Marokkó eru kallaðar keisaraborgirnar?

8. Hvað styðja VIMA félagar mörg börn í Jemen árið 2008-2009?

9. Í hvaða landi Miðausturlanda er Tabriz?

10. Hvað heitir soldáninn af Óman og hvenær (dagur og ár) ýtti hann föður sínum úr sessi og tók við?

11. Hverjar eru höfuðborgir Armeníu, Georgíu og Azerbajdan?

12. Í hvaða landi Miðausturlanda fannst fyrst olía og hvenær?

13. Hvar eru frægustu fornminjar, frá tímum Rómverja í 1)Líbíu 2) Sýrlandi 3) Jórdaníu?

14. Hvað heitir eyðimörkin í Óman og hversu stór er hún?

15. Hvar er ólæsi mest/minnst í löndum araba?

16. Hvaða ár var Balfour yfirlýsingin gefin? Og við hvern er hún kennd?

17. Hvaða menntun hefur forsetafrúin í Sýrlandi?

18. Í hvaða stjörnumerki var Jasir Arafat sálugi og fyrv. leiðtogi Palestínumanna?

19. Hvar hefur fundist elsta stafróf í heimi sem fræðimenn hafa ráðið?

20. Til hvaða landa í arabaheiminum er unnt að komast þótt menn séu með ísraelskan stimpil í vegabréfi?

Langflest svör við þessari getraun er að finna hér og hvar á síðunni. Annars í ferðabókum um löndin.

Frestur til að skila svörum er til 19.mars. Vinsamlegast sendið til mín á jemen@simnet.is og ferð bíður þess sem fróðastur/heppnastur er. Ef fleiri en einn hafa öll svör rétt verður dregið úr réttum lausnum.
Þau lönd sem eru verðlaunalönd eru Jemen/Jórdanía í maí, Marokkó í sept Libía í okt og Egyptaland í nóvember.

8 comments:

Anonymous said...

Úff þetta eru erfiðar spurningar, maður verður að liggja yfir þessu alla helgina,
Kv. Edda

Anonymous said...

Já,en ég get lánað þér kúst ef þú vilt. Maður verður að vinna fyrir hlutu7num vænan mín.Svo eru þær ekkert svo slæmar. Maður byrjar á þeim auðveldari fyrst og svo finnur maður út úr hinu.
KvJK

Anonymous said...

Eh eh, þetta er okkar Gettu betur eða hvað? flottar spurningar, en sammála Eddu, erfiðar sumar.

Anonymous said...

Gaman að prófa en það verða margar villur bara til að vera með enda brakar í heilasellunum strax og ekki seinna vænna að þjálfa þær. kv. Jóna

sosa1010 said...

þú ert snillingur - bjargar helginni fyrir mér... það er ekkert betra en að leysa menningatengdar þrautir yfir rauðvínsglasi;) ... kv. Linda Björk

sosa1010 said...
This comment has been removed by the author.
Anonymous said...

Ég var að opna póstinn minn núna á mánudagsmorgni. Þetta er eitt af því sniðugra sem þér hefur dottið í hug. Allir hafa gaman af getraunum - og þegar fólk er sokkið í leit og rannsóknarvinnu - þá eykst áhuginn á svæðinu. Kannski slærð þú margar flugur í einu höggi.
Kærar kveðjur
Hólmfr. Björns.

Anonymous said...

Gott að heyra, kæra Hólmfríður! Fólk þarf kannski aðeins að grúska til að finna sum svörin og það finnst vonandi öllum skemmtilegt.
Kær kveðja
Jóhanna